LIVE SAMFÉLAGSMIÐLA MASTERCLASS

LIVE SAMFÉLAGSMIÐLA MASTERCLASS

Regular price 36.990 kr Unit price  per 

BÓKA NÁMSKEIÐ

Hversu spennt er ég! Það er loksins komið að því að ég sé að fara halda tryllt samfélagsmiðla námskeið þar sem þú munt læra að koma þér eða vörumerkinu betur á framfæri án þess að vera stanslaust með kostaðar auglýsingar. Þetta námskeið verður LIVE webinar þar sem hægt er að spyrja í rauntíma, á námskeiðinu verða einnig viðtöl sem hafa nú þegar verið tekin upp og verða birt á námskeiðinu. Til að útskýra þó betur þá verð ég að tala í rauntíma. Námskeiðið í heildina eru um tvær klukkustundir en við getur bæst einn klukkutími ef það verða margar spurningar. 

Vertu með og veldu dagsetningu sem henta þér hér til hliðar. 

Þetta námskeið er fyrir þig:

  • Þig langar að geta selt vörurnar þínar í gegnum samfélagsmiðla
  • Þú ert ekki alveg með á hreinu hvers konar efni þú ættir að vera pósta á samfélagsmiðlana þína
  • Þú veist ekki hvernig á að búa til gott efni og vera pósta jafnt og þétt yfir árið.
  • Fylgjendahópurinn er ekki að stækka eða taka við efninu sem þú ert að gefa út
  • Þú veist ekki hvernig þú getur náð í réttan fylgjendahóp fyrir vörumerkið þitt
  • Þig langar að búa til full-time career í gegnum samfélagsmiðla og ert tilbúin að leggja inn metnað og vinnuna á bakvið það
  • Þig langar að læra vinna með áhrifavöldum


Þú lærir: 

  • Frekari skilning á hvernig samfélagsmiðlar virka 
  • Setja upp samfélagsmiðla
  • Finna réttan fylgjendahóp
  • Tekjumöguleikar 
  • Vinna með áhrifavöldum
  • Nýta samfélagsmiðla á þann hátt að þú þurfir ekki alltaf kostaðar auglýsingar
  • Lesa í tölfræði á samfélagsmiðlum
  • Hvernig þú getur stækkað fylgjendahópinn
  • Hvaða efni er betra en annað á samfélagsmiðlum 
  • Lærir að taka þátt í vinsælu efni
  • Hvernig best er að skipuleggja efnið



Viðtöl á námskeiðinu: Gerður eigandi Blush með yfir 8 ára reynslu á samfélagsmiðlum og Anna Marta eigandi vörumerkisins Anna Marta sem þú getur nú fundið í helstu matvöru verslunum landsins. 

Ef þú hefur einhverjar spurningar áður en þú bókar, endilega sendu mér skilaboð á tanja@tanjayr.comog ég svara þér um hæl.

UMSAGNIR FRÁ NÁMSKEIÐUM

Samfélagsmiðla námskeiðið hjá Tönju Ýr var einstaklega faglegt og lærdómsríkt. Tanja var búin að stúdera miðlana okkar í bak og fyrir og og var með mjög uppbyggilega punkta og aðferðir um hvernig við getum bætt bæði samfélagsmiðlana okkar og heimasíðuna okkar. Námskeiðið veitti manni mikinn innblástur og lærdóm hvernig við getum gert enn betur og aukið söluna og tekjurnar okkar með því að tileinka okkur þekkingu hennar á þessum miðlum. Frábært í alla staði og mæli eindregið með.

- RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR OG GÍGJA SARA BJÖRNSSON EIGENDUR KATTAKAFFIHÚSSINS

Það er ekkert annað en forréttindi að fá að vinna með Tönju. Ég leyfi mér stór orð að hún er metnaðarfullasta, duglegasta, mest hvetjandi og drífandi manneskja sem ég hef nokkurntímann unnið með. Þekking og reynsla hennar á samfélagsmiðlum er gífurlega mikil og þessi fallega ástríða sem hún er með fyrir samfélagsmiðlum er einstök. Það hefur skilað henni persónulega og mörgum einstaklingum sem og fyrirtækjum afar miklu. Allt sem hún hefur kennt mér bæði sem manneskja, í rekstri og á samfélagsmiðla er ein sú dýrmætasta gjöf sem ég hef fengið.

- MARÍA, FRUMKVÖÐULL & MARKÞJÁLFI

Tanja Ýr hefur haldið fyrirlestur um samfélagsmiðla og markaðsetningu á samfélagsmiðlum fyrir nemendur Reykjavik Makeup School núna í um eitt ár við miklar vinsældir nemenda. Fyrirlesturinn er rosalega flott uppsettur, faglegur og fróðlegur og útskýrir Tanja allt að svo mikillri innlifun og kemur öllu svo vel frá sér á líflegan og skemmtilegan hátt , hún fær nemendur til að taka mikinn þátt í fyrirlestrinum með allskyns spurningum og umræðum. Við erum ótrúlega þakklátar fyrir að hafa hana í kennarateymi RMS.

- SARA & SILLA, REYKJAVIK MAKEUP SCHOOL

Mjög fróðlegt og skemmtilegt. Vel unnið að mínum persónulegu miðlum og þeim markmiðum og áherslum sem ég vil hafa. Ótrúlega gott að fá önnur augu á miðlana sína sem segja manni hvað virkar og það sem meira er hvað virkar ekki. Hlakka ótrúlega til að vinna útfrá því sem ég lærði á 1:1 samfélagsmiðlanámskeiðinu og gera mína miðla betri.

- LILJA, FÖRÐUNARFRÆÐINGUR OG SÖNGKONA

Ég gæti ekki verið ánægðari með námskeiðið hjá Tönju Ýr, það var ótrúlega fróðlegt og gagnlegt. Námskeiðið gaf mér kraft og þekkingu til að að elta mína drauma og ná árangri. Tanja er alveg 110% í öllu sem hún gerir og 1:1 samfélagsmiðlanámskeiðið er þar engin undantekning, námskeiðið var ótrúlega vel uppsett, faglegt, lærdómsríkt og sniðið að mínum markmiðum og draumsýn. Ástríða Tönju á markaðssetningu, samfélagsmiðlum og að hjálpa öðrum að ná árangri leyndi sér ekki, það er ómetanlegt að fá svona góð ráð frá slíkum viskubrunni í þessum efnum. Ég bara gæti ekki mælt meira með þessu námskeiði fyrir alla þá sem vilja læra betur inn á markaðssetningu og samfélagsmiðla, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu skref í þeim efnum eða vilja einfaldlega bara bæta við þekkingu sína og gera enn betur! Ég hlakka ótrúlega mikið til að byggja upp mína miðla út frá því sem ég lærði hjá Tönju á námskeiðinu.

- TELMA FANNEY

Námskeiðið Hennar Tönju Ýr um vöruþróun og stofnun vörumerkis gékk algjörlega vonum framar! Ég var mjög spennt að skrá mig à þetta námskeið og hafði smá hugmynd um hvað ég vildi vita og spurja, kom í ljós að það sem ég vildi vita var hreinlega bara brotabrot af öllum upplýsingum sem við fengum. Ég var eiginlega bara í sjokki með hversu lítið ég vissi fyrir en rosalega ánægð með magn af upplýsingum, aðstoð og fræðslu sem við fengum á námskeiðinu. Ég þarf ekki að byrja á toppnum og Tanja sýndi okkur hvernig það er hægt. Gerður arinbjarnar var með geggjaða fræðslu og pepp fyrir okkur öll. Geggjaður stuðningur og fræðsla frá Gerði. Eftir fyrsta daginn vissi ég eiginlega ekkert hverju ég ætti að eiga von á seinni daginn, viti menn, það var nóg eftir af upplýsingum. Fengum að spyrja bókara að öllu milli himins og jarðar og fá ráð og aðstoð, sem róar aðeins taugarnar fyrir okkur sem erum rétt að byrja. Virkilega ánægð með námskeiðið og alla fræðsluna sem ég fékk, gekk vonum framar og frammúr öllum mínum væntingum. Ég virkilega mæli með þessu námskeiði fyrir alla sem eru að spá í eigin rekstur og eigin vörulínu/þróun, þetta er staðurinn sem þú færð actual svör og að spyrja um allt. Tíminn er núna, taktu stökkið.

- ALEXANDRA DOUGLAS

Algengar spurningar

Samkvæmt pósti sem ég fékk frá stéttarfélögunum að þá þarf hver og einn að athuga sitt stéttarfélag. Einnig langar mig að benda á það að sumir atvinnurekendur aðstoða við að greiða niður námskeiðsgjöld.

Ekki hika við að senda á mig á tanja@tanjayr.com og ég get hjálpað þér að finna það námskeið sem hentar.