Komdu þér á framfæri: Lærðu á tækifærin og tekjumöguleikana sem leynast á samfélagsmiðlum

Komdu þér á framfæri: Lærðu á tækifærin og tekjumöguleikana sem leynast á samfélagsmiðlum

Regular price 34.990 kr Unit price  per 

BÓKA NÁMSKEIÐ
Hvar? Reykjavík, nákvæm staðsetning kemur síðar.
Ath. Ýmis stéttarfélög veita styrki fyrir sókn á námskeið

 

Námskeiðið er haldið 4.NÓVEMBER 2023 12.00-16.00 í Reykjavík. Nákvæm staðsetning kemur síðar. 

Fyrsta áhrifavalda og efnissmíða námskeið á Íslandi. Á námskeiðinu munum við spjalla um hluti sem enginn vill deila og engin talar um hvað varðar að negla niður samstörf, byggja upp eigið nafn og búa til auka tekjur. 

 

Á námskeiðinu verður farið yfir: 

  • Hvernig getur þú nálgast vörumerki til að fara í samstarfi við
  • Hvernig getur þú fengið greitt fyrir vinnuna þína?
  • Hvenær og hversu mikið áttu að rukka fyrir samstörf?
  • Skref fyrir skref hvernig þú býrð til efni fyrir samfélagsmiðlana þína
  • Tips&tricks hvernig þú færð vörumerki í langtíma samstarf og þannig þau vilji vinna með þér aftur eftir fyrsta skipti
  • Hvenær, hversu mikið þú átt að taka fyrir samstörf
  • Taktík til að auka fylgi og byggt upp betra samband við fylgjendurnar þínar
  • Læra að selja efni án þess að pósta efninu á þína miðla (UGC IS HERE TO BE)
  • Lærir að byggja upp media kit

Eftir námskeið færð þú: 

  • Goodie bag
  • Media kit
  • Invoice template
  • Gátlista yfir hvernig best er að vinna með fyrirtækjum
  • Excel skjal þar sem þú getur fylgt út með hverjum þú ert að vinna með og séð yfirlit yfir tekjurnar þínar
  • Gátlisti yfir skilmála sem þú þarft að vita um áður en þú byrjar

Lærðu á tækifærin og tekjumöguleikana sem leynast á samfélagsmiðlum. Ekki láta þetta spennandi tækifæri framhjá þér fara. 

Námskeiðið er sérstaklega búið til fyrir:

  • Áhrifavalda eða þá sem vilja verða áhrifavaldar
  • Alla þá sem vilja skoða tækifærin sem samfélagsmiðlar bjóða upp á.
  • Þeir sem vilja eiga möguleika að vinna sjálfstætt eða auka tekjurnar. 
  • Þá sem vilja verða content creatorar

 

UMSAGNIR FRÁ ÖÐRUM NÁMSKEIÐUM

Samfélagsmiðla námskeiðið hjá Tönju Ýr var einstaklega faglegt og lærdómsríkt. Tanja var búin að stúdera miðlana okkar í bak og fyrir og og var með mjög uppbyggilega punkta og aðferðir um hvernig við getum bætt bæði samfélagsmiðlana okkar og heimasíðuna okkar. Námskeiðið veitti manni mikinn innblástur og lærdóm hvernig við getum gert enn betur og aukið söluna og tekjurnar okkar með því að tileinka okkur þekkingu hennar á þessum miðlum. Frábært í alla staði og mæli eindregið með.

- RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR OG GÍGJA SARA BJÖRNSSON EIGENDUR KATTAKAFFIHÚSSINS

Það er ekkert annað en forréttindi að fá að vinna með Tönju. Ég leyfi mér stór orð að hún er metnaðarfullasta, duglegasta, mest hvetjandi og drífandi manneskja sem ég hef nokkurntímann unnið með. Þekking og reynsla hennar á samfélagsmiðlum er gífurlega mikil og þessi fallega ástríða sem hún er með fyrir samfélagsmiðlum er einstök. Það hefur skilað henni persónulega og mörgum einstaklingum sem og fyrirtækjum afar miklu. Allt sem hún hefur kennt mér bæði sem manneskja, í rekstri og á samfélagsmiðla er ein sú dýrmætasta gjöf sem ég hef fengið.

- MARÍA, FRUMKVÖÐULL & MARKÞJÁLFI

Tanja Ýr hefur haldið fyrirlestur um samfélagsmiðla og markaðsetningu á samfélagsmiðlum fyrir nemendur Reykjavik Makeup School núna í um eitt ár við miklar vinsældir nemenda. Fyrirlesturinn er rosalega flott uppsettur, faglegur og fróðlegur og útskýrir Tanja allt að svo mikillri innlifun og kemur öllu svo vel frá sér á líflegan og skemmtilegan hátt , hún fær nemendur til að taka mikinn þátt í fyrirlestrinum með allskyns spurningum og umræðum. Við erum ótrúlega þakklátar fyrir að hafa hana í kennarateymi RMS.

- SARA & SILLA, REYKJAVIK MAKEUP SCHOOL

Mjög fróðlegt og skemmtilegt. Vel unnið að mínum persónulegu miðlum og þeim markmiðum og áherslum sem ég vil hafa. Ótrúlega gott að fá önnur augu á miðlana sína sem segja manni hvað virkar og það sem meira er hvað virkar ekki. Hlakka ótrúlega til að vinna útfrá því sem ég lærði á 1:1 samfélagsmiðlanámskeiðinu og gera mína miðla betri.

- LILJA, FÖRÐUNARFRÆÐINGUR OG SÖNGKONA

Ég gæti ekki verið ánægðari með námskeiðið hjá Tönju Ýr, það var ótrúlega fróðlegt og gagnlegt. Námskeiðið gaf mér kraft og þekkingu til að að elta mína drauma og ná árangri. Tanja er alveg 110% í öllu sem hún gerir og 1:1 samfélagsmiðlanámskeiðið er þar engin undantekning, námskeiðið var ótrúlega vel uppsett, faglegt, lærdómsríkt og sniðið að mínum markmiðum og draumsýn. Ástríða Tönju á markaðssetningu, samfélagsmiðlum og að hjálpa öðrum að ná árangri leyndi sér ekki, það er ómetanlegt að fá svona góð ráð frá slíkum viskubrunni í þessum efnum. Ég bara gæti ekki mælt meira með þessu námskeiði fyrir alla þá sem vilja læra betur inn á markaðssetningu og samfélagsmiðla, hvort sem þeir eru að stíga sín fyrstu skref í þeim efnum eða vilja einfaldlega bara bæta við þekkingu sína og gera enn betur! Ég hlakka ótrúlega mikið til að byggja upp mína miðla út frá því sem ég lærði hjá Tönju á námskeiðinu.

- TELMA FANNEY

Námskeiðið Hennar Tönju Ýr um vöruþróun og stofnun vörumerkis gékk algjörlega vonum framar! Ég var mjög spennt að skrá mig à þetta námskeið og hafði smá hugmynd um hvað ég vildi vita og spurja, kom í ljós að það sem ég vildi vita var hreinlega bara brotabrot af öllum upplýsingum sem við fengum. Ég var eiginlega bara í sjokki með hversu lítið ég vissi fyrir en rosalega ánægð með magn af upplýsingum, aðstoð og fræðslu sem við fengum á námskeiðinu. Ég þarf ekki að byrja á toppnum og Tanja sýndi okkur hvernig það er hægt. Gerður arinbjarnar var með geggjaða fræðslu og pepp fyrir okkur öll. Geggjaður stuðningur og fræðsla frá Gerði. Eftir fyrsta daginn vissi ég eiginlega ekkert hverju ég ætti að eiga von á seinni daginn, viti menn, það var nóg eftir af upplýsingum. Fengum að spyrja bókara að öllu milli himins og jarðar og fá ráð og aðstoð, sem róar aðeins taugarnar fyrir okkur sem erum rétt að byrja. Virkilega ánægð með námskeiðið og alla fræðsluna sem ég fékk, gekk vonum framar og frammúr öllum mínum væntingum. Ég virkilega mæli með þessu námskeiði fyrir alla sem eru að spá í eigin rekstur og eigin vörulínu/þróun, þetta er staðurinn sem þú færð actual svör og að spyrja um allt. Tíminn er núna, taktu stökkið.

- ALEXANDRA DOUGLAS

Algengar spurningar

Algjörlega..þetta námskeið er um allt sem þú verður að vita til að stofna þitt eigið vörumerki. Þetta er tilvalið fyrir þá sem vilja stofna sitt eigið. Það er alls ekki nauðsynlegt að vera byrjuð/aður á neinu. Við förum yfir þau tól og tæki sem eru í boði til að búa til flott vörumerki. Eins er námskeiðið líka sniðið fyrir þá sem eru byrjaðir í rekstri en vilja aðstoð og sjá nýjar leiðir.

Já, við förum nákvæmlega í þetta. Það er margt sem þarf að hafa í huga annað en bara það að framleiða vöruna. Bæði vörumerkið á bakvið vöruna, bókhaldshliðin og svo að sjálfsögðu að finna framleiðendur og kunna að semja við þá. Ég fer einnig yfir ýmisskonar prentun og hvernig þú getur komið hugmynd af vöru niður á blað og í tölvuteikningu og svo í rétt form til framleiðenda fyrir fyrsta prufueintak.

Samkvæmt pósti sem ég fékk frá stéttarfélögunum að þá þarf hver og einn að athuga sitt stéttarfélag. Einnig langar mig að benda á það að sumir atvinnurekendur aðstoða við að greiða niður námskeiðsgjöld.

Ekki hika við að senda á mig á tanja@tanjayr.com og ég get hjálpað þér að finna það námskeið sem hentar.