CapCut Masterclass | Lærðu að klippa efni sem vekur athygli.
CapCut Masterclass | Lærðu að klippa efni sem vekur athygli.

Veldu dagsetningu: Tveggja vikna námskeið – kennt tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum. 1.3.8. og 10. september kl. 17:30–20:00.

CapCut Masterclass | Lærðu að klippa efni sem vekur athygli.

Eftir námskeiðið munt þú

- Klippa myndbönd hraðar og með meira sjálfstrausti.

- Búa til efni sem lítur fagmannlega út.

- Vita hvernig þú nærð athygli fólks fyrstu sekúndurnar.

- Geta búið til efni sem styður við sölu, markaðssetningu eða persónulegt vörumerki.

- Hafa skýrt ferli sem þú getur notað aftur og aftur.

Svör við spurningum &

Nytsamlegar upplýsingar

Algengar spurningar

Ef að þig vantar enn svör við spurningum ekki hika við að senda mér tölvupóst tanja@tanjayr.com

Fæ ég persónulega aðstoð?

Já. Þú færð tækifæri til að spyrja spurninga í tímum og fá endurgjöf á eigin myndbönd. Við verðum tvö að leiðbeina þetta námskeið.

Er hægt að fá styrk frá stéttarfélagi (VR, efling..)?

Já - hver og einn að athuga sitt stéttarfélag. Einnig langar mig að benda á það að sumir atvinnurekendur aðstoða við að greiða niður námskeiðsgjöld.

Er námskeiðið fyrir byrjendur?

Já. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa aldrei opnað CapCut og þeim sem vilja taka klippinguna sína á næsta stig.

Þarf ég tölvu?

Nei. Við vinnum eingöngu í CapCut í síma og þú þarft aðeins síma með CapCut uppsettu.
Athuga: Þú getur verið með CapCut mánaðar áskrift en getur einnig notað það frítt að vissu marki.

Þarf ég að vera góður í að búa til efni?

Nei. Markmiðið er að kenna þér ferlið frá grunni og hjálpa þér að öðlast sjálfstraust í efnissköpun.

Fæ ég verkefni á milli tíma?

Já. Á milli kennslutíma færðu verkefni sem hjálpa þér að æfa það sem þú hefur lært og ná sem mestum árangri.

Hvað þarf ég að koma með?

Síma með CapCut uppsettu, hleðslutæki og góða skapið.

Leiðbeinendur

Tanja Ýr

Ég hef starfað við efnissköpun og samfélagsmiðla í mörg ár og byggt upp fyrirtæki og vörumerki með hjálp myndbanda sem ná athygli og skapa árangur. Í þessu námskeiði kenni ég nákvæmlega hvernig ég vinn sjálf í CapCut og hvaða aðferðir hafa skilað mér mestum árangri á samfélagsmiðlum og í sölu.

Stefán John Turner

Stefán verður hluti af kennslunni og deilir sinni reynslu úr faglegri efnissköpun. Hann hefur unnið með fjölmörgum vörumerkjum við framleiðslu á efni fyrir samfélagsmiðla, séð um ljósmyndun, myndbandsgerð og klippingu, auk þess að mynda og skapa efni á áhrifavalda- og fyrirtækjaviðburðum. Hann hefur jafnframt unnið með samfélagsmiðla fyrirtækja og veit hvað þarf til að búa til efni sem bæði lítur vel út og skilar árangri. Hann er með kerfi sem hann notar alla daga til að skipuleggja og ná að skila verkefnum af sér hratt og örugglega. Hann mun sína sitt kerfi á námskeiðinu.