Nýr vettvangur fyrir konur sem reka eigin fyrirtæki.

25. apríl | 17:00–20:00

Lítill, persónulegur kvöldviðburður fyrir 10 konur í rekstri til að tengjast, deila reynslu og byggja samfélag.

Kvöldverður, Bollinger kampavín, networking og murder mystery upplifun.

Aðeins 10 sæti. Umsóknir loka þegar fyllist.

Viltu fylgjast með Konur í Rekstri?

Ef þú nærð ekki sæti núna eða vilt fylgjast með næstu skrefum skráðu þig á lista með því að senda mér tölvupóst tanja@tanjayr.com.

Af hverju er þetta frítt?

Þessi fyrsti viðburður er kostaður í samstarfi við Bollinger og þess vegna get ég boðið 10 konum að koma án kostnaðar.

Markmiðið núna er ekki að selja miða.
Markmiðið er að byrja á lítilli hugmynd sem ég hef alltaf haft og láta hana verða að veruleika og vonandi að eitthverju stærra.

Af hverju Konur í Rekstri?

Ég hef lengi viljað skapa rými fyrir konur sem reka fyrirtæki til að hittast fyrir utan samfélagsmiðla og á öðruvísi hátt en þetta hefðbundna networking sem við þekkjum.

Rými fyrir hreinskilin samtöl.
Rými fyrir tengingar.
Rými fyrir stuðning.

Þessi fyrsti viðburður er lítil byrjun á stærri hugmynd.

Hvað er þetta?

Þetta er ekki formleg ráðstefna.
Þetta er ekki hefðbundinn networking viðburður.

Þetta er skemmtileg og lærdómsrík samvera fyrir konur í rekstri.

Kvöldið inniheldur:

  • Kynning
  • Network spjall
  • Kvöldverð
  • Bollinger kampavín
  • Murder mystery leikur
  • Opið frumkvöðla spjall um rekstur, áskoranir og vöxt

Fyrir hverja?

✓ rekur eigið fyrirtæki
✓ vilt tengjast öðrum konum í rekstri
✓ hefur áhuga á samfélagi, tengingum og stuðningi
✓ vilt vera partur af einhverju sem gæti þróast áfram

Konur í rekstri
Konur í rekstri
Konur í rekstri