Vinnustofa sem er byggð
utan um ykkar fyrirtæki

Þurfið þið að efla þekkingu starfsfólks á samfélagsmiðlum, stafrænni markaðssetningu eða efnissköpun, en hefðbundið námskeið hentar ekki alveg ykkar þörfum?

Ég býð fyrirtækjum upp á sérsniðnar vinnustofur þar sem efnið er mótað sérstaklega út frá markmiðum, áskorunum og þekkingu starfsfólksins.

Hvort sem þið eruð þrjú í teyminu eða stærri starfsmannahópur fáið þið markvissa fræðslu, raunhæf verkefni og lausnir sem hægt er að innleiða strax í daglegu starfi.

Fá sérsniðna tillögu

Ekki enn eitt almennt námskeið

Áður en vinnustofan fer fram skoðum við hvar fyrirtækið stendur í dag, hvað starfsfólkið þarf að læra og hvaða árangri þið viljið ná.

Vinnustofan getur farið fram hjá fyrirtækinu, á öðrum stað eftir samkomulagi eða í fjarfundi. Hægt er að velja eina lengri vinnustofu eða skipta fræðslunni niður í fleiri skipti.

Vinnustofan getur meðal annars snúist um:

  • Stefnumótun og skipulag fyrir samfélagsmiðla
  • Efnissköpun sem styður við markmið fyrirtækisins
  • Króka, miðju og ákall til aðgerða
  • Meta-auglýsingar og Ads Manager
  • Markhópa og endurmarkaðssetningu
  • Túlkun á tölfræði
  • Að greina hvað er að virka og hvað þarf að laga
  • Myndbandsgerð og einfaldari vinnuferla
  • CapCut og önnur verkfæri fyrir efnisgerð
  • Shopify og uppbyggingu vefverslunar
  • Tölvupóstmarkaðssetningu og Klaviyo
  • Gervigreind og sjálfvirknivæðingu

Ef fyrirtækið hefur aðrar sértækar þarfir er einnig hægt að byggja vinnustofuna utan um þær.

Hvernig fer ferlið fram?

  1. Þið segið mér frá þörfum fyrirtækisins

    Þið fyllið út stutt form um fyrirtækið, starfsfólkið, núverandi áskoranir og það sem þið viljið fá út úr vinnustofunni.

  2. Ég útbý tillögu

    Ég fer yfir upplýsingarnar og legg til innihald, fyrirkomulag og lengd vinnustofunnar.

  3. Vinnustofan er sérsniðin

    Efnið, dæmin og verkefnin eru aðlöguð að fyrirtækinu svo starfsfólkið geti tengt fræðsluna beint við sitt daglega starf.

  4. Þið farið heim með skýrar aðgerðir

    Markmiðið er að starfsfólkið viti nákvæmlega hvað á að gera næst og hafi verkfæri til að koma því í framkvæmd.

Fyrir hverja hentar vinnustofan?

Vinnustofan hentar fyrirtækjum sem vilja:

  • Samræma þekkingu og vinnubrögð innan teymisins
  • Byggja upp meiri færni innanhúss
  • Fá aðstoð við ákveðin vandamál eða kerfi
  • Þjálfa starfsfólk út frá raunverulegum verkefnum fyrirtækisins
  • Fá markvissari fræðslu en almennt námskeið getur boðið

Óskið eftir sérsniðinni vinnustofu

Ég hef samband eftir að ég hef farið yfir upplýsingarnar og við finnum í sameiningu fyrirkomulag sem hentar fyrirtækinu. Engin skuldbinding felst í því að senda inn fyrirspurn.

Hvaða viðfangsefni hafið þið mestan áhuga á? Veljið eins mörg og eiga við.