Láttu Claude sjá um auglýsingarnar. Þú sérð um söluna.
Hálfur dagur. Þú ferð heim með herferð sem er tilbúin fyrir jólin og skýrslu frá Claude í símanum á hverjum morgni.
„Námskeiðið opnaði nýja veröld af möguleikum sem mér óraði ekki fyrir að væru í boði fyrir eins venjulega manneskju og mig. Mér líður eins og ég hafi fundið gullnámu.“
Þetta námskeið er fyrir þig ef
Þú veist að auglýsingar virka en hefur ekki tíma til að sitja yfir þeim, eða ert ekki viss um hvort peningarnir skila sér.
- Þú átt fyrirtæki og sérð sjálf eða sjálfur um auglýsingarnar.
- Þú ert markaðsstjóri og vilt vinna hraðar og taka ákvarðanir út frá tölum.
- Þú borgar stofu fyrir auglýsingar og vilt skilja hvað er í gangi.
- Þú hefur heyrt um gervigreind en veist ekki hvernig hún nýtist í alvöru.
- Þú vilt vita á hverjum morgni hvernig auglýsingarnar ganga án þess að opna Meta.
Það sem við förum yfir
Í þessari viku setti ég upp pop-up herferð í fimm bæjum með Claude. Á námskeiðinu sýni ég þér nákvæmlega hvernig, og þú gerir það sama í þínum eigin auglýsingareikningi.
Tengdu Claude við Meta
Við tengjum Claude við auglýsingareikninginn þinn saman í byrjun, svo það geti lesið tölurnar þínar og unnið beint í Meta með þér.
Hvernig þú talar við Claude
Hvaða upplýsingar Claude þarf um vörumerkið, markhópinn og tilboðið svo það skili góðri vinnu. Ég sýni þér muninn á lélegri og góðri beiðni í beinni.
Herferð fyrir þitt fyrirtæki
Þú byggir og keyrir herferð beint í gegnum Claude: uppsetningu, markhóp, texta og hugmyndir að myndefni. Hraðar og einfaldara en í Ads Manager, og allt fyrir þitt eigið fyrirtæki.
Lestu tölurnar rétt
Hvernig þú lætur Claude fara yfir niðurstöðurnar og segja þér hvað á að stöðva, hvað á að stækka og hvar peningarnir eru að fara til spillis.
Morgunskýrsla á hverjum degiSjálfvirkt
Claude sendir þér skýrslu á hverjum morgni: hvað seldist, hvað kostaði og hvað þú ættir að skoða í dag. Ég fæ mína kl. 7 alla virka daga og sýni þér hvernig þú setur upp þína.
Þú ferð heim með þetta
Herferð fyrir þitt fyrirtæki, tilbúna fyrir jólavertíðina. Þú kannt að setja upp og keyra auglýsingarnar beint í gegnum Claude, miklu hraðar og einfaldara en að sitja í Ads Manager. Morgunskýrslu frá Claude í símann alla daga sem segir þér hvað virkar og hvað ekki. Og safnið mitt af beiðnum til Claude, svo þú getir haldið áfram sjálf eða sjálfur strax daginn eftir.
Veldu dagsetningu
Settu upp jólaherferðina áður en Black Friday skellur á 27. nóvember.
Styrkur. Flest stéttarfélög styrkja námskeiðið og sumir atvinnurekendur greiða. Ég get sent reikning á fyrirtækið.
Kemst þú ekki? Ekkert mál. Ég færi þig á aðra dagsetningu eða endurgreiði.
Greiðsla. Kort, Netgíró, Aur, reikningur í heimabanka eða skipt greiðsla.
Það sem þátttakendur segja
„Besta tips ever: ekki eyða pening í eitthvað sem gefur ekki hærri tekjur. Eins og boost á FB og Instagram!“
„Tanja var búin að stúdera miðlana okkar í bak og fyrir og var með mjög uppbyggilega punkta um hvernig við getum aukið söluna.“
„Námskeiðið kenndi okkur að lesa betur í tölfræðina sem miðlarnir eru að færa okkur.“
„Ég er nýbyrjuð með vefverslun og get gert rétt strax frá upphafi og sparað mér að eyða peningum í ranga hluti.“
Hver er Tanja Ýr
Síðan 2014 hef ég unnið á samfélagsmiðlum og byggt upp mín eigin vörumerki nær eingöngu í gegnum þá. Í dag nota ég Claude á hverjum degi til að setja upp auglýsingar, fara yfir tölurnar og sjá hvað virkar.
Á námskeiðinu sýni ég þér nákvæmlega hvernig ég geri það, svo þú getir gert það sama fyrir þitt fyrirtæki.
Algengar spurningar
Þarf ég að kunna eitthvað á Claude eða gervigreind?
Nei. Við byrjum á grunninum og þú lærir allt sem þú þarft á námskeiðinu.
Hvað þarf ég að taka með mér?
Fartölvu, Claude Pro áskrift og aðgang að Meta auglýsingareikningnum þínum. Windsor.ai tengingin er frí og við setjum hana upp saman. Ég sendi þér gátlista viku fyrir námskeiðið svo allt sé tilbúið þegar þú mætir.
Kostar Claude eitthvað?
Já, þú þarft Claude Pro áskrift eða hærri. Hún þarf til að tengja Claude við Meta og fá morgunskýrsluna á hverjum degi. Windsor.ai tengingin er frí.
Er hægt að fá styrk frá stéttarfélagi?
Já, ýmis stéttarfélög veita styrki fyrir námskeiðum. Sumir atvinnurekendur aðstoða líka við að greiða.
Get ég hætt við eftir að ég skrái mig?
Það er ekkert mál að fá endurgreitt eða færa þig á aðra dagsetningu.
Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?
Greiðslukort í gegnum Teya, Netgíró og Aur. Ég get líka sent reikning í heimabanka eða skipt niður greiðslum.
Fleiri spurningar? Sendu mér línu á tanja@tanjayr.com