2026 BYRJENDANÁMSKEIÐ: Samfélagsmiðlanámskeið fyrir fyrirtækjaeigendur og markaðsstjóra
2026 BYRJENDANÁMSKEIÐ: Samfélagsmiðlanámskeið fyrir fyrirtækjaeigendur og markaðsstjóra

Veldu dagsetningu:: REYKJAVÍK: 6. & 8.október - kl 12.00-16.30 báða dagana í Reykjavík

2026 BYRJENDANÁMSKEIÐ: Samfélagsmiðlanámskeið fyrir fyrirtækjaeigendur og markaðsstjóra
2026 BYRJENDANÁMSKEIÐ: Samfélagsmiðlanámskeið fyrir fyrirtækjaeigendur og markaðsstjóra

Yfirlit námskeiðs

DAGUR 1

- Samfélagsmiðlastefna og hugmyndir
- Uppsetning samfélagsmiðla
- Efni sem virkar: Tegund efnis & stærðir
- Nýting samfélagsmiðla: Spotta trend og nota þá fyrir betri sýnleika
- Myndbandsgerð og textahönnun

DAGUR 2

- Verkleg kennsla á PDF bók sem fylgir námskeiðinu
- CapCut verkleg kennsla
- Stærðir, hljóð, tónlist og birting
- Æfing: Klippt myndband + lokaútgáfa
- Skipuleggja efni fram í tímann
- Samantekt og framtíðarsýn

Svör við spurningum &

Nytsamlegar upplýsingar

Algengar spurningar

Ef að þig vantar enn svör við spurningum ekki hika við að senda mér tölvupóst tanja@tanjayr.com

Er hægt að fá styrk frá stéttarfélagi (VR, efling..)?

Ýmis stéttarfélög veita styrki fyrir aðsókn á námskeið. Einnig langar mig að benda á það að sumir atvinnurekendur aðstoða við að greiða niður námskeiðsgjöld.

Ég er ekki viss hvaða námskeið hentar?

Ekki hika við að senda á mig á tanja@tanjayr.com og ég get hjálpað þér að finna það námskeið sem hentar.

Get ég hætt við eftir að ég skrái mig?

Það er ekkert mál að fá endurgreitt eða færa þig á aðra dagsetningu ef þú sérð þig ekki fært á að koma

Hvað þarf ég að taka með mér?

Eina sem þú þarft að taka með þér er glósubók eða tölvu. Á öllum námskeiðum þá eru pennar og blöð sem þið getið einig nýtt ykkur.

Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?

Hægt er að greiða með:
- Greiðslukorti í gegnum Teya
- Netgíró
- Aur

Svo er einnig hægt að hafa samband og ég get sent reikning í heimabanka eða skipt niður greiðslum.

Ath. Ýmis stéttarfélög veita styrki fyrir sókn á námskeið

Umsagnir frá þeim sem hafa setið Byrjendanámskeiðið

chevron_left chevron_right

Tanja Ýr hefur mjög hvetjandi og jákvætt viðmót og er óspör á að deila reynslu sinni og þekkingu. Námskeiðið er hagnýtt og kemur víða við.

— Kristín Linda sálfræðingur

Mjög ánægð, farið vel yfir og passað að allir nái lexíu áður en farið er í næstu, sannarlega ekki síðasta námskeið sem ég fer á hjá Tönju, bestu þakkir:)

— Trend Travel

Námskeiðið var frábært og fór fram úr mínum væntingum. Lærði mun meira en bara um grunnatriði efnisskōpunar í CapCut. Tanja Ýr deildi einnig af reynslu sinni um praktísk atriði sem munu auðvelda og hjálpa mér við efnisskōpun í framtíðinni.

— Anna Katrín Einarsdóttir

Mér fannst námskeiðið skemmtilegt, lærði heilmikið og skil betur hvernig allt virkar. Að læra á capcut er það sem stendur uppúr og var það helsta sem ég vildi læra, en sá svo að ég gæti nýtt mér fullt af öðru sem þú komst inná eins og til dæmis Grid og fl. Þú er greinilega mjög fær í því sem þú gerir og ert alveg á jörðinni , takk kærlega fyrir mig, það var gaman að kynnast þér👌

— Anna Jónsdóttir

Frábært námskeið sem ég mæli hiklaust með!
Það opnaði algjörlega nýjan heim fyrir mér hvernig ég get skipulagt samfélagsmiðlana fram í tímann og þá sérstaklega á tarnartíma þegar ekkert kemst að nema framleiðsla og þjónusta við fólkið mitt.

— Keramikloftið

Dásamlegt námskeið. Hvetjandi og styðjandi fyrirlesari

— Útgáfufélagið Sunnuhvoll ehf

Snildar námskeið, flott uppsetning og vel skipurlagt. Lærði alveg ótrúlega mikið sem mun hjálpa mér í framtíðinni

— Óskadýr ehf

Ég fór eiginlega bara til að læra á Capcut en lærði líka talsvert um samfélagsmiðla. Mér fannst námskeiðið bæði fræðandi og nytsamlegt jafnvel þó ég sé ekki að huga að makaðssetningu vöru eða merkis. Hver og einn fékk stuðning og Tanja hugsaði vel um að öll væru örugglega með á nótunum. Mæli sannarlega með.

— Bjarkey Olsen