Byrjendanámskeið · Fyrir byrjendur, alveg frá byrjun

Búðu til efni sem fær fólk til að stoppa.

Tveggja daga verkleg vinnustofa fyrir fyrirtækjaeigendur og markaðsstjóra. Engin tæknikunnátta nauðsynleg. Þú ferð heim með þitt eigið myndband og efnisdagatal til að vinna eftir.

Reykjavík · 14. og 15. nóvember · kl. 12.00 til 16.30
Akureyri · 21. og 22. nóvember · kl. 12.00 til 16.30
Skrá mig á námskeið 54,990 kr · styrkhæft hjá stéttarfélögum
Yfir 100 umsagnir
frá fyrri námskeiðum
Fyrir byrjendur
alveg frá byrjun, engin tæknikunnátta
Hægt að fá styrk
VR, Efling og fleiri stéttarfélög
„Það opnaði algjörlega nýjan heim fyrir mér hvernig ég get skipulagt samfélagsmiðlana fram í tímann.“
Keramikloftið

Þetta námskeið er fyrir þig ef

Þú veist að þú þarft að vera á samfélagsmiðlum en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja.

  • Þú átt fyrirtæki eða sérð um markaðsmálin.
  • Þú vilt læra að búa til myndbönd sem líta vel út.
  • Þú vilt skilja hvað virkar á samfélagsmiðlum og ná meiri sýnileika.
  • Þú vilt skipuleggja efnið fram í tímann og hætta að pósta á síðustu stundu.

Það sem við förum yfir

Fyrri daginn förum við yfir stefnu, uppsetningu og efni sem virkar. Seinni dagurinn er verklegur: þú klippir þitt eigið myndband í CapCut og skipuleggur efnið þitt fram í tímann.

Miðlarnir settir rétt upp

Instagram, Facebook og TikTok. Hvernig hver miðill virkar, hvernig þú setur hann upp og hvaða efni virkar á hverjum.

Myndbönd í CapCut

Verkleg kennsla. Þú lærir að klippa einföld myndbönd, setja texta, hljóð og tónlist rétt inn og birta. Þú klippir þitt eigið myndband á námskeiðinu.

Trend og sýnileiki

Hvernig þú finnur trend og nýtir þau, tips og trix fyrir meiri sýnileika og hvernig tölfræðin segir þér hvað er að virka.

Skipulag fram í tímann

Þú lærir að skipuleggja efnið þitt svo þú sért alltaf með gott flæði, líka þegar mikið er að gera.

Þú ferð heim með þetta

Efnisdagatal til að vinna eftir, PDF bók með checklista, PDF með öllum stærðum og textasvæðum, og aðgang að lokuðum hópi ef þú vilt. Við vinnum með þetta allt á námskeiðinu svo þú getur byrjað strax.

Veldu dagsetningu

Þetta eru síðustu námskeið ársins. Næst í febrúar 2027.

Reykjavík
14. og 15. nóvember
Laugardagur og sunnudagur, kl. 12.00 til 16.30.
54,990 kr
Akureyri
21. og 22. nóvember
Laugardagur og sunnudagur, kl. 12.00 til 16.30.
54,990 kr

Styrkur. Flest stéttarfélög styrkja námskeiðið og sumir atvinnurekendur greiða. Ég get sent reikning á fyrirtækið.

Kemst þú ekki? Ekkert mál. Ég færi þig á aðra dagsetningu eða endurgreiði.

Greiðsla. Kort, Netgíró, Aur, reikningur í heimabanka eða skipt greiðsla.

Hentar þessi dagsetning ekki?

Það sem þátttakendur segja

„Tanja Ýr hefur mjög hvetjandi og jákvætt viðmót og er óspör á að deila reynslu sinni og þekkingu. Námskeiðið er hagnýtt og kemur víða við.“
Kristín Linda, sálfræðingur
„Námskeiðið var frábært og fór fram úr mínum væntingum. Lærði mun meira en bara um grunnatriði efnissköpunar í CapCut.“
Anna Katrín Einarsdóttir
„Hver og einn fékk stuðning og Tanja hugsaði vel um að öll væru örugglega með á nótunum. Mæli sannarlega með.“
Bjarkey Olsen
„Mjög ánægð, farið vel yfir og passað að allir nái lexíu áður en farið er í næstu.“
Trend Travel

Hver er Tanja Ýr

Síðan 2014 hef ég eingöngu unnið á samfélagsmiðlum. Ég hef byggt upp mín eigin vörumerki nær eingöngu í gegnum miðlana og séð um miðla fyrir fyrirtæki.

Á byrjendanámskeiðinu fer ég rólega og skref fyrir skref yfir allt sem þú þarft til að byrja, svo enginn verður skilinn eftir.

Algengar spurningar

Þarf ég að kunna eitthvað fyrirfram?

Nei. Engin tæknikunnátta er nauðsynleg. Við byrjum á grunninum og förum í gegnum allt skref fyrir skref.

Er hægt að fá styrk frá stéttarfélagi?

Já, ýmis stéttarfélög veita styrki fyrir námskeiðum. Sumir atvinnurekendur aðstoða líka við að greiða.

Get ég hætt við eftir að ég skrái mig?

Það er ekkert mál að fá endurgreitt eða færa þig á aðra dagsetningu.

Hvað þarf ég að taka með mér?

Glósubók eða tölvu.

Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?

Greiðslukort í gegnum Teya, Netgíró og Aur. Ég get líka sent reikning í heimabanka eða skipt niður greiðslum.

Ég er ekki viss hvaða námskeið hentar mér?

Sendu mér línu á tanja@tanjayr.com og ég hjálpa þér að finna rétta námskeiðið.

Fleiri spurningar? Sendu mér línu á tanja@tanjayr.com

Byrjaðu 2027 með skýrari stefnu

Velja dagsetningu