Lærðu að klippa myndbönd sem fólk horfir á til enda.
Lærðu að klippa myndbönd í CapCut frá grunni, beint í símanum. Þrír verklegir tímar í litlum hópi, með persónulegri endurgjöf á þín eigin myndbönd.
Þetta námskeið er fyrir þig ef
Þú tekur upp efni en klippingin tekur allt of langan tíma, eða útkoman verður ekki eins og þú vilt.
- Þú vilt læra að klippa myndbönd sem líta fagmannlega út.
- Þú rekur fyrirtæki og vilt búa til betra efni fyrir samfélagsmiðla.
- Þú ert efnisskapari eða langar að verða það.
- Þú vilt spara tíma og hætta að eyða klukkutímum í hvert myndband.
- Þú vilt skilja hvað fær fólk til að stoppa, horfa og fylgja.
Það sem við förum yfir
Þrír kennslutímar, 7,5 klst. samtals, með verkefnum á milli tíma svo þú æfir þig á þitt eigið efni.
CapCut frá grunni
Allt sem þú þarft að kunna í forritinu, beint í símanum, og uppáhalds CapCut stillingarnar mínar.
Hook sem grípa athygli
Hvernig þú nærð athygli á fyrstu sekúndunum og klippir svo fólk horfi lengur.
Texti, hljóð og áhrif
Texti, hljóð, transitions og áhrif sem láta myndbönd líta fagmannlega út, og AI eiginleikar CapCut sem spara þér tíma.
Þinn eigin stíll
Hvernig þú finnur stíl sem verður þekktur sem þinn, og hvernig ég klippi sjálf fyrir TikTok, Instagram og auglýsingar.
Innifalið
3 kennslutímar, verkefni á milli tíma og persónuleg endurgjöf. Þú færð líka allar glærur, hook- og caption hugmyndabanka, uppáhalds CapCut stillingarnar mínar og aðgang að lokuðum hópi.
Veldu dagsetningu
Þetta er persónulegur og lítill hópur.
Styrkur. Flest stéttarfélög styrkja námskeiðið og sumir atvinnurekendur greiða. Ég get sent reikning á fyrirtækið.
Kemst þú ekki? Ekkert mál. Ég færi þig á aðra dagsetningu eða endurgreiði.
Greiðsla. Kort, Netgíró, Aur, reikningur í heimabanka eða skipt greiðsla.
Það sem fólk segir um CapCut kennsluna mína
„Námskeiðið var frábært og fór fram úr mínum væntingum. Lærði mun meira en bara um grunnatriði efnissköpunar í CapCut.“
„Að læra á CapCut er það sem stendur upp úr og var það helsta sem ég vildi læra.“
„Ég fór eiginlega bara til að læra á CapCut en lærði líka talsvert um samfélagsmiðla. Hver og einn fékk stuðning.“
Hver er Tanja Ýr
Ég hef starfað við efnissköpun og samfélagsmiðla í mörg ár og byggt upp fyrirtæki og vörumerki með hjálp myndbanda sem ná athygli og skapa árangur.
Á námskeiðinu kenni ég nákvæmlega hvernig ég vinn sjálf í CapCut og hvaða aðferðir hafa skilað mér mestum árangri á samfélagsmiðlum og í sölu.
Algengar spurningar
Er námskeiðið fyrir byrjendur?
Já. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa aldrei opnað CapCut og þeim sem vilja taka klippinguna sína á næsta stig.
Þarf ég tölvu?
Nei. Við vinnum eingöngu í CapCut í síma. Þú getur verið með CapCut áskrift en getur líka notað forritið frítt að vissu marki.
Fæ ég persónulega aðstoð?
Já. Þú getur spurt spurninga í tímum og færð endurgjöf á þín eigin myndbönd. Þetta er persónulegur og lítill hópur.
Fæ ég verkefni á milli tíma?
Já. Á milli kennslutíma færðu verkefni sem hjálpa þér að æfa það sem þú hefur lært.
Hvað þarf ég að koma með?
Síma með CapCut uppsettu og hleðslutæki.
Er hægt að fá styrk frá stéttarfélagi?
Já, ýmis stéttarfélög veita styrki fyrir námskeiðum. Sumir atvinnurekendur aðstoða líka við að greiða.
Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?
Greiðslukort í gegnum Teya, Netgíró og Aur. Ég get líka sent reikning í heimabanka eða skipt niður greiðslum.
Fleiri spurningar? Sendu mér línu á tanja@tanjayr.com