Byggðu þína eigin netverslun, tilbúna til að selja.
Verklegt námskeið þar sem við byggjum Shopify-netverslunina þína saman, frá fyrstu uppsetningu að tilbúninni verslun sem er klár til að taka við pöntunum. Engin fyrri reynsla nauðsynleg.
Þetta námskeið er fyrir þig ef
Þú vilt geta stjórnað og uppfært verslunina þína sjálf og sparað þér pening.
- Þú ert að stofna netverslun.
- Þú ert með fyrirtæki en vantar netverslun.
- Þú hefur selt í gegnum Instagram eða Facebook og vilt taka næsta skref.
- Þú ert með Shopify-verslun en veist ekki hvernig þú klárar hana.
Það sem við byggjum saman
Við förum í gegnum allt sem þarf, í réttri röð, og þú vinnur í þinni eigin verslun allan tímann.
Grunnur og hönnun
Shopify grunnurinn, theme og hönnun, branding og litir, forsíða, valmyndir og mikilvægar síður.
Vörur og uppbygging
Vörur og vörusíður, variants, collections og flokkar, birgðir, vörulýsingar og hvernig verslunin lítur út í síma.
Verslunin fer að selja
Greiðsluleiðir, sendingar og afhending, VSK, checkout og pöntunarferli, skilmálar og skil.
Launch
Apps og viðbætur, SEO grunnur, analytics og mælingar, prófanir og launch checklist. Við yfirförum allt saman svo verslunin sé klár.
Þú ferð heim með verslun sem er tilbúin til að selja
Þína eigin Shopify-netverslun, Shopify handbók, templates og checklists, app recommendations og SEO og analytics checklist. Þú færð líka aðgang að myndbandabanka og öllu námsefni eftir námskeið.
Næstu dagsetningar
Nýjar dagsetningar verða kynntar fljótlega. Skráðu þig á biðlistann og þú færð að vita fyrst.
Styrkur. Flest stéttarfélög styrkja námskeið og sumir atvinnurekendur greiða. Ég get sent reikning á fyrirtækið.
Shopify áskrift. Áskriftin og keypt theme eru ekki innifalin í námskeiðsgjaldi.
Greiðsla. Kort, Netgíró, Aur, reikningur í heimabanka eða skipt greiðsla.
Frá námskeiðinu



Hver er Tanja Ýr
Ég opnaði mína fyrstu netverslun 21 árs og hef síðan þá byggt allar mínar vefsíður og netverslanir sjálf, þar á meðal tanjayr.is og bambamhouse.is.
Á Shopify Masterclass sýni ég þér nákvæmlega hvernig ég set upp mínar verslanir, á mannamáli og skref fyrir skref.
Algengar spurningar
Þarf ég að kunna eitthvað á Shopify?
Nei. Við byrjum á núlli og byggjum verslunina upp saman skref fyrir skref.
Þarf ég að kaupa Shopify theme?
Nei, þú getur notað ókeypis theme. Við förum yfir muninn á ókeypis og keyptum theme svo þú getir valið það sem hentar þér.
Er Shopify áskrift innifalin?
Nei, Shopify áskriftin er greidd beint til Shopify og er ekki innifalin í námskeiðsgjaldi.
Þarf ég að vera með fyrirtæki nú þegar?
Nei. Þú getur byggt verslunina á námskeiðinu og klárað skráninguna síðar.
Þarf ég að vera með vörurnar mínar tilbúnar?
Það hjálpar að hafa myndir og upplýsingar um nokkrar vörur með sér, en það er ekki skilyrði.
Get ég komið með mína eigin netverslun og klárað hana?
Já. Ef þú ert komin af stað vinnum við í þinni verslun og klárum það sem vantar.
Get ég fengið styrk fyrir námskeiðinu?
Ýmis stéttarfélög veita styrki fyrir námskeiðum. Hafðu samband við þitt stéttarfélag til að kanna þinn rétt.
Fleiri spurningar? Sendu mér línu á tanja@tanjayr.com